Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg
EN  -  NO  -  [IS] Forsíða  |  Krækjur |   A til Ö    
Um okkur
ESB og alþjóðamál
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk
 

 

 

 

Fréttabréf

fastanefndar framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi,

  15. október 2009


Mikilvægasti fríverslunarsamningur ESB
ESB og S-Kórea hafa komist að samkomulagi um fríverslunarsamning sem Ashton utanríkisviðskiptastjóri ESB kallar mikilvægasta fríverslunarsamning sem ESB hefur gert við þriðja ríki".  Samningurinn felur í sér umfangsmikið afnám tolla, gjalda og tæknilegra hindrana og opnar evrópskum vörum og þjónustu leið inn á stóran asískan markað.  Lesa nánar

 

 


Verðlaunuð fyrir framlag í þágu innri markaðarins
Hin portúgalska Aurora de Freitas hlaut í vikunni sérstök verðlaun sænsku formennskunnar og framkvæmdastjórnar ESB fyrir framlag í þágu innri markaðarins. Með verðlaununum vill ESB undirstrika mikilvægi þess að reglur innri markaðarins og fjórfrelsið virki í reynd. Aurora de Freitas var heiðruð fyrir baráttu sína fyrir réttinum til búsetu í Frakklandi án sérstaks dvalarleyfis, en borgarar innri markaðarins eiga ekki að þurfa dvalarleyfi til að geta sest að í öðru EES/ESB-landi. Lesa viðtal við Auroru.

 


Staðan í stækkunarmálum ESB
Framkvæmdastjórnin kynnti nýverið stöðuna í stækkunarferli ESB og þau skref sem tekin hafa verið á undanförnu ári í aðildarferli Tyrklands og landanna á vestanverðum Balkanskaga. Tuttugu og átta kaflar af 35 hafa til að mynda verið opnaðir í aðildarviðræðunum við Króatíu og í 13 köflum liggur fyrir bráðabirgðaniðurstaða. Þá leggur framkvæmdastjórnin til að aðildarviðræður við Makedóníu verið hafnar. Sjá yfirlýsingu Olla Rehn.

 


Stefna ESB á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn
Aðildarríki ESB hafa komið sér saman um stefnu og markmið fyrir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn dagana 7.-12. desember. Meginmarkmið ESB er að ná samstöðu um aðgerðir til að koma í veg fyrir að hiti á jörðinni stígi um meira en tvær gráður á Celsíus miðað við fyrir iðnbyltingu. Lesið hér
 

 


ESB gegn dauðarefsingum
Þann 10. október var opinber dagur gegn dauðarefsingum. ESB hefur á undanförnum árum verið leiðandi í baráttunni fyrir afnámi dauðarefsinga, meðal annars á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Á árinu 2008 var 2.390 dauðarefsingum fullnægt í 25 löndum. Lesið hér


 


Fjárlagahalli í níu ríkjum í bága við reglur
Að áliti framkvæmdastjórnarinnar mun fjárlagahalli í níu aðildarríkjum á árinu 2009 vera umfram það sem leyfilegt er samkvæmt reglum sambandsins. Málið kemur næst til kasta ráðherraráðsins sem getur lagt til við aðildarríkin að þau grípi til aðgerða til að minnka hallann.
Lesið hér


 


Írar samþykkja Lissabon-sáttmálann
Mikill meirihluta Íra samþykkti í þjóðaratkvæðagreiðslu 2. október Lissabon-sáttmála ESB. Lesa yfirlýsingu Jose Manuel Barroso af því tilefni. Lissabon-sáttmálinn hefur nú hlotið samþykki í 26 aðildarríkjum og bíður einungis samþykkis forseta Tékklands, en tékkneska þingið hefir þegar samþykkt sáttmálann. Meira um Lissabon-sáttmálann.

 

 


Fleiri fréttatilkynningar frá framkvæmdastjórn ESB.


Áhugaverðar útgáfur

Smelltu hér til að finna bæklinga og annað upplýsingaefni um ESB

 

Til að hætta í áskrift að fréttabréfinu smelltu hér

www.esb.is