ESB gegn mansali
Framkvæmdastjórn ESB hefur
samþykkt tillögur að nýjum reglum sem gefa svigrúm til
hertra aðgerða í baráttunni gegn
mansali, vændi, misnotkun barna og barnaklámi.
Nái tillögurnar fram að ganga verður réttur fórnarlamba
aukinn, refsiramminn hertur til muna auk þess sem rýmkað
verður um heimildir
til að fylgjast með refsiverðum athæfum á netinu.
Einnig verður komið á fót mun sérhæfðari meðhöndlun
kynferðisbrotamanna en það sem tíðkast í dag.
Komið hefur í ljós að tæpur helmingur fórnarlamba mansals
eru neyddir út í vændi og eru 98% fórnarlambanna ungar konur
eða stúlkur. Einnig hefur komið í ljós að rúmur fimmtungur
kynferðisbrotamanna sem sakfelldir eru,
eru líklegir til að
endurtaka glæp sinn síðar á ævinni. Lesið meira
hér.
Evrópubúar með mestu farsímanotkunina
Evrópubúar eiga heimsmet í
farsímanotkun. Farsímaáskriftir á hvern íbúa
mælist í Evrópu 119% af heildarfólksfjölda, sem
er umtalsvert hærra hlutfall en í Bandaríkjunum (87%) og
í hinu tæknivædda landi
Japan (84%). Kostnaður farsímanotkunar verður sífellt minni
milli ára. Þetta hefur meðal annars leitt af sér að á meðan
hagvöxtur í heiminum mælist undir einu prósentustigi er
vöxtur í farsímaiðnaðinum mun kröftugri (1.3%). Lesið meira
hér.
Ár nýsköpunar í Evrópu
Árið 2009 er ár
nýsköpunar
í Evrópu og standa fundarraðir sem skipulagðar
eru um þetta málefni, nú sem hæst.
Tilefni fundanna er meðal annars að vekja athygli á þeim
mannauð sem hægt er að nýta til nýsköpunar og verða skipaðir sérstakir sendiherrar
málefnisins sem munu vekja athygli á mikilvægi menntunar á
þessu sviði en framkvæmdastjórn ESB hefur lagt til að nýsköpun
verði ein af grunnstoðum menntunar í framtíðinni. Lesið
meira
hér.
Ráðleggingar
um góða stjórnunarhætti hvað laun forstjóra fyrirtækja
varðar
Ráð vegna evrópskra
stjórnunarhátta hefur gefið út
ráðeggjandi yfirlýsingu varðandi laun og
þóknanir forstjóra fyrirtækja. Er sú skoðun sett fram að
taka eigi tillit til raunárangurs fyrirtækisins
þegar laun forstjóra eru áætluð. Einnig er
lagt til að biðlaun forstjóra verði einskorðuð við
tvö ár og að ekki eigi að
veita biðlaun ef uppsögn hefur átt sér stað á
grundvelli lélegrar
frammistöðu. Lesið meira
hér.
Ransóknir
á berklum styrktar af ESB
Haldið var í vikunni upp á
hinn alþjóðlega berkladag (24. mars). Framkvæmdastjórn ESB hefur
í gegn um tíðina veitt
yfir 11 milljónum evra í rannsóknir á berklum og þróun
berklalyfja. Þann 19. mars síðastliðinn glitti í árangur af
því starfi þegar tilkynnt var um uppgötvun á
nýju lyfi sem sýnir mikla möguleika á
bata. Lyfið er það fyrsta sem kemur fram í
yfir 40 ár sem talið er líklegt að geta unnið á sjúkdómnum. Lesið
meira
hér.
Iðnaðarframkvæmdir í ESB
Iðnaðarframleiðsla jókst alls
um 1.3% á evrusvæðinu í janúar 2009 miðað við
mánuðinn á undan og um 1.8% innan alls Evrópusambandsins á
sama tímabili. Mest jókst
framleiðsla í Slóveníu (22.4%) og á Spáni (7.8%). Þá jukust
byggingarframkvæmdir einar og sér um 1.8% innan ESB, samanborið við samdrátt um 2.8% í desembermánuði
á síðasta ári. Lesið meira
hér.
Bókmenntaverðlaun ESB
Bókmenntaverðlaun
Evrópusambandsins verða í fyrsta sinn veitt í september á
þessu ári. Á dögunum var sérstök dómnefnd skipuð fyrir þau 12 lönd sem taka þátt í
fyrstu umferð verðlaunaafhendingarinnar. Markmið
verðlaunanna er að varpa ljósi á þá
fjölbreytni og auð sem liggur í evrópskum nútímabókmenntum
og styðja við dreifingu og sölu bókmennta
milli ríkja sambandsins. Lesið meira
hér.
Hagræðing
í landbúnaði ESB
(18/3)
Vel þykir miða
áfram í markmiði framkvæmdastjórnar ESB að draga úr
skriffinnsku í landbúnaði um 25% fyrir árið 2012. Ef fram
fer sem horfir mun þetta þýða hagræðingu fyrir bændur,
fyrirtæki á matvælamarkaði og alla stjórnsýslu sem tengist
landbúnaði. Enn frekari hagræðing þykir líkleg til að
spara hundruðir milljóna evra fyrir evrópskan landbúnað
og auka
samkeppnishæfni hans til muna. Lesið meira
hér.
Eurostat
um vinnumarkaðinn
(16/3)
Atvinnuleysi jókst um 0.3% undir lok síðasta árs samkvæmt
nýjustu mælingum Eurostat. Mesta atvinnuleysisaukning milli ársfjórðunga mældist á Spáni og í Lettlandi.
Lesið meira
hér.
Fleiri fréttatilkynningar frá framkvæmdastjórn ESB.
|