|

Fréttabréf
fastanefndar
framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi,
25.
júní
2009
Áhrif
loftslagsbreytinga á atvinnulífið
Framkvæmdastjórn ESB stendur þessa dagana fyrir
samráðsfundum í Brussel um hugsanleg áhrif loftslagsbreytinga á atvinnumál.
Ljóst er, að sögn Vladimír Spidla framkvæmdastjóra
umhverfis- og loftslagsmála, að loftslagsbreytingar munu í
náinni framtíð kalla
á breyttar áherslur í atvinnumálum þar sem
margar gamlar atvinnugreinar eru um það bil að hverfa
en
nýjar að myndast í staðinn. Lesið meira
hér.
ESB
og Kína: Samstarf um þróun á CO2 neðanjarðargeymslum
Evrópusambandið hefur lagt fram fjárhagsáætlun um
þróunarsamstarf með Kína sem miðar að því að þróa tækni
til beisla og geyma CO2 neðanjarðar. Hin svokallaða Carbon
Capture and Storage tækni, sem meðal annars Norðmenn hafa
tekið þátt í að þróa, miðar að því að beisla CO2 sem losnar
út við orkuframleiðslu frá jarðefnaeldsneyti og geyma það
neðanjarðar. Þessi tækni er hins vegar dýr og hafa margir
áhyggjur af öryggismálum, en ESB og Kína hafa þrátt fyrir
það ákveðið að hefja samstarf um frekari þróun á tækninni.
Lesið meira
hér.
Endurbætur
á sameiginlegu fiskveiðistefnunni: Yfirlit yfir áfanga og
árangur sem náðist á tímabilinu 2006-2008
Framkvæmdastjórnin
lagði nýlega fram yfirlitsskýrslu um mælanlegan
árangur sem náðst hefur og endurbætur sem þegar
hafa verið gerðar á hinni sameiginlegu fiskveiðistefnu
ESB. Evrópusambandið á enn langt í land með að ná markmiðum sínum hvað CFP varðar, að
sögn Joe Borg, en það er líka mikilvægt að skoða
og benda á þann
árangur sem náðst hefur.
Lesið meira
hér.
Baráttan
gegn krabbameini
Framkvæmdastjórn ESB hefur ýtt úr vör átaki sem kallast
European partnership for action against cancer. Eins
og nafn verkefnisins gefur til kynna, miðast það að því að
stilla saman strengi bæði meðal sérfræðinga
sem og áhugafólks í
baráttunni gegn krabbameini. Árlega greinast um 3.2
milljónir Evrópubúa með krabbamein af einhverju
tagi.
Meðferð og lífshorfur einstaklinga eru jafn
misjafnar og tilfellin eru mörg, en framkvæmdastjórnin
ESB vill draga úr þeim mun á
batahorfum sem skýrist einungis af því hvar í Evrópu
menn búa.
Lesið meira
hér
Clean
Sky verkefninu ýtt úr vör; umhverfisvænni og hlóðlátari
flugvélar
Framkvæmdastjórnin hleypti nýlega af stokkunum metnaðarfullu
verkefni sem kallast Clean Sky. Verkefnið er
rannsóknar- og þróunarverkefni sem gæti
orðið eitt
af því umfangsmesta sem ESB hefur staðið að
til þessa.
Verkefnið, sem verður þverfaglegt, miðast að því að þróa og
hanna umhverfisvænni og hljóðlátari flugskjóta.
ESB hefur sett sér ströng markmið hvað varðar að draga verulega úr
útblæstri óæskilegra lofttegunda
fyrir árið 2020. Lesið meira
hér.
Agaleysi
vandamál í evrópskum skólum
Framkvæmdastjórn ESB, í samvinnu við OECD, birti á dögunum
niðurstöður víðtækrar rannsóknar sem gerð var meðal
evrópskra kennara. Niðurstöðurnar benda meðal annars til að
lélegur aðbúnaður og laun kennara, sem og agaleysi í skólastofum, séu
víðast hvar nokkuð útbreytt vandamál. Að sögn Ján Figel sem er
í forsvari fyrir mennta- og menningarmál í
framkvæmdastjórn ESB, þurfa
kennarar að fá mun meiri stuðning en þeir
njóta í dag, til að
bregðast megi við agavandamálum í
evrópskum skólum. Lesið nánar
hér.
Neytendamál
og öryggi barna: Unnið er að gerð nýrra öryggisstaðla
ESB, í samvinnu við hagsmunasamtök sem berjast fyrir bættu
öryggi barna og fækkun slysa í ESB, vinnur að gerð nýrra
gæðastaðla á öryggisbúnaði fyrir yngstu neytendur sína.
Viðamiklar rannsóknir um helstu orsakir slysa á börnum, sem
ESB lét gera á árunum 2002-2004 , hafa leitt í ljós að
það er síður en svo óyfirstíganlegt verkefni að draga úr
algengustu slysum á börnum.
Lesið meira
hér.
Fleiri fréttatilkynningar frá framkvæmdastjórn ESB.
|