Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg
EN  -  NO  -  [IS] Forsíða  |  Krækjur |   A til Ö    
Um okkur
ESB og alþjóðamál
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk
 

 

 

 

Fréttabréf

fastanefndar framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi,

  11. júní 2009


Evrópskir háskólar fá viðurkenningu (11/6)
Sextíu og fimm evrópskir háskólar frá 16 löndum hlutu viðurkenningu frá framkvæmdastjórn ESB fyrir framúrskarandi stuðning við stúdenta sem taka hluta af námi sínu erlendis. Um er að ræða viðurkenningu fyrir notkun á sameiginlegu evrópsku einingakerfi (ECTS) og prófskírteinum (Diploma Supplement) sem auka gagnsæi og auðvelda viðurkenningu á námi yfir landamæri. Lesið nánar hér.

 


Viðræður hefjast við Kanada um nýjan viðskiptasamning (10/6)
Viðræður hófust í vikunni milli samninganefnda ESB og Kanada um nýjan efnahags- og viðskiptasamning sem ætlað er að ná allt til viðskipta með vörur og þjónustu, fjárfestinga, opinberra innkaupa, hugverkaréttinda og umhverfisáhrifa. Samningurinn yrði að sögn framkvæmdastjórnarinnar einn metnaðarfyllsti tvíhliða samningur sem ESB hefur gert. ESB er önnur stærsta uppspretta erlendra fjárfestinga í Kanada á meðan fjárfestingar kanadískra aðila eru þær fjórðu stærstu í ESB. Lesið meira hér.

 


Ný áætlun um samstarf á sviði dóms- og innanríkismála (9/6)
Framkvæmdastjórnin hefur lagt fram drög að nýrri áætlun um samstarf á sviði dóms-, innanríkis- og innflytjendamála fyrir næstu fimm árin. Áætlunin gengur út á nánara samstarf aðildarríkjanna, en eins og fram kemur í yfirlýsingu framkvæmdastjórnarinnar er mikilvægt að koma á enn nánara samstarfi milli lögreglu- og dómsyfirvalda í aðildarríkjunum til að mæta markmiðum um frelsi í ferðalögum og flutningum á innri markaði ESB, öryggi og auðveldan aðgang að réttarkerfum. Lesið meira hér.
 


Ódýrari GSM-símtöl: Síðustu hindrun rutt úr vegi (8/6)
Ráðherraráð ESB hefur lagt blessun sína yfir nýja reglugerð um kostnað við farsímanotkun milli ESB/EES-landa. Með reglugerðinni, sem tekur gildi innan ESB 1. júlí næstkomandi, lækkar verulega kostnaður við að hringja úr farsíma, senda smáskilaboð, hala niður o.fl. á ferðalögum í öðrum ESB/EES ríkjum. Reglugerðin nær til alls EES-svæðisins en óljóst er hvenær reglugerðin tekur gildi í EES/EFTA-ríkjunum þremur. Lesið nánar hér.
 


Úrslit Evrópuþingskosninganna (8/6)
José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, lýsti úrslitum Evrópuþingskosningana sem sigri þeirra stjórnmálaafla sem styðja Evrópusamrunann og vilja að ESB taki með virkum og uppbyggilegum hætti þátt í að móta framtíð borgara ESB-ríkja. Um leið ber stjórnmálaleiðtogum skylda til að leita leiða til að virkja almenning til meiri þátttöku í Evrópuþingskosningum í framtíðinni. Yfirlýsingu Barroso má nálgast hér og úrslit kosninganna hér
 


Sameiginlegt ESB átak í atvinnumálum (3/6)
Stofnanir ESB, aðildarríkin og aðilar vinnumarkaðarins standa saman að sérstöku átaki sem miðar að því að standa vörð um og skapa fleiri störf. Niðursveiflan í evrópsku atvinnulífi kallar á sérstakar aðgerðir, einkum í atvinnumálum ungs fólks. Rúmlega 19 milljarðar evra verða til ráðstöfunar í átakinu. Lesið meira hér.

 


Fleiri fréttatilkynningar frá framkvæmdastjórn ESB.


Áhugaverðar útgáfur

Smelltu hér til að finna bæklinga og annað upplýsingaefni um ESB

 

Til að hætta í áskrift að fréttabréfinu smelltu hér

www.esb.is