Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg
EN  -  NO  -  [IS] Forsíða  |  Krækjur |   A til Ö    
Um okkur
ESB og alþjóðamál
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk
 

 

 

 

Fréttabréf

fastanefndar framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi,

  8. apríl 2009


WTO ber lof á viðskiptastefnu ESB og stuðning við þróunarríki
Í nýrri skýrslu Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) er borið lof á framlag ESB til frjálsra heimsviðskipti og forystuhlutverk þess, t.d. í Doha-viðræðunum á síðastliðnu ári. ESB fær einnig sérstakt hrós fyrir viðleitni sína við að hjálpa þróunarríkjum að verða fullgildir þátttakendur í alþjóðaviðskiptakerfinu. Lesið nánar hér.

 


Neytendamál: Verslun á netinu má ekki verða að  „villta vestrinu"
Meglena Kuneva, yfirmaður neytendamála í framkvæmdastjórn ESB flutti á dögunum ræðu þar sem hún skar upp herör gegn ólöglegum verslunarháttum á netinu. Hún benti meðal annars á að allt of algengt væri að verslunaraðilar á netinu teldu sig ekki bundna af reglum um persónuvernd. Allt of algengt væri að menn kæmust upp með að nota viðkvæmar upplýsingar um neytendur í auglýsingaskyni.  Kuneva sagði að það myndi ekki líðast að láta verslunaraðila á netinu komast upp með að virða réttindi neytenda að vettugi. Neytendur í ESB mættu vera vissir um að lögmál villta vestrisins giltu ekki innan ESB, jafnvel þótt um netverslun væri að ræða. Lesið meira hér.


Þrjú ár liðin frá upptöku lénsins „ .eu “
Þrjú ár eru liðin síðan Evrópusambandið tók upp skráningu á lénum með endingunni „.eu“ - sem á sínum tíma var sett á fót meðal annars með því augnarmiði að auknu traust fólks á verslun á netinu. Í dag, þremur árum síðar hefur útbreiðsla og vinsældir Evrópulénsins farið fram úr björtustu vonum. Í dag er fjöldi léna með þessa endingu kominn yfir þrjár milljónir. Lesið meira hér.

 


Verðbólga lækkar á evrusvæðinu
Verðbólga á evrusvæðinu er áætluð 0.6% fyrir mars 2009. Er það töluverð lækkun frá því í febrúar en þá mældist verðbólgan 1.2%. Lesið meira hér.

 


Sparnaður vegna vörumerkja
Fyrirtæki á innri markaði ESB munu frá og með 1. maí 2009 geta tryggt vörumerki sín á ódýrari og auðveldari hátt. Talið er að það geti minnkað kostnað fyrirtækja við að tryggja vörumerki um allt að 44% og auðveldað viðskipti á innri markaði ESB sem og utan hans. Lesið meira hér.

 


Fjárfest í sjálfbærri orkunýtingu
Framkvæmdastjórn ESB hefur ákveðið að verja 15 milljónum evra til að aðstoða evrópskar borgir við að fjárfesta í sjálfbærri orkunýtingu.  Að sögn Andris Piebalgs, framkvæmdastjóra orkumála hjá ESB, mun aukin fjárfesting á þessu sviði geta skapað ný störf auk þess að milda áhrif loftslagsbreytinga. Framkvæmdir sem falla undir skilgreininguna á sjálfbærri orkunýtingu eru til dæmis endurnýjun bygginga, veitun endurnýtanlegrar orku inn á byggð svæði og orkusparnaður í samgöngum. Lesið meira hér.


Ný vefgátt fyrir fyrirtæki
ESB hefur opnuð vefgátt sem á að auðvelda fyrirtækjum að hasla sér völl í öðrum löndum ESB. Gáttin veitir til dæmis svör við spurningum eins og hvernig eigi að skrá fyrirtæki í Hollandi, hvaða leyfi þurfi til að selja afurðir á Ítalíu og hvaða skattar eru lagðir á fyrirtæki í Póllandi. Fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB segir gáttina eiga að auðvelda smærri og meðalstórum fyrirtækjum að nýta sér tækifæri hins sameiginlega evrópska markaðar. Lesið meira hér.
 


ESB hleypur til stuðnings á krabbameinsrannsóknum
Íþróttalið framkvæmdastjórnar ESB tók helgina 28.-29. mars þátt í hlaupinu Relais pour la Vie í Luxembourg, en hlaupið er árviss viðburður til styrktar baráttunni gegn krabbameini. Undir sjöundu (FP7) og sjöttu rammaáætlun ESB hefur um 745 milljónum evra verið varið til krabbameinsrannsókna. Lesið meira hér.

 


Smærri fyrirtæki geti nýtt viðskiptatækifæri betur
Meira en 23 milljónir, eða um 99 % allra fyrirtækja í ESB, teljast til smærri fyrirtækja. Aðeins 3% fyrirtækja flytja út vörur til landa utan ESB. Framkvæmdastjórn ESB, Evrópuþingið, og fulltrúar smærri fyrirtækja komu saman nýverið til að ræða hvernig viðskiptastefna ESB megi nýtast fyrirtækjum betur til hefja og auka útflutning. Lesið meira hér.

 

Fleiri fréttatilkynningar frá framkvæmdastjórn ESB.


Áhugaverðar útgáfur

Smelltu hér til að finna bæklinga og annað upplýsingaefni um ESB

 

Til að hætta í áskrift að fréttabréfinu smelltu hér

www.esb.is