Sendiherrann
bloggar - ný bloggfærsla
Percy Westerlund, sendiherra fastanefndarinnar sendi á dögunum frá sér
bloggfærslu þar sem hann fjallar um viðbrögð leiðtoga Evrópu við
efnahagskrísunni. Lesið meira hér.
Stækkun
ESB: Balkanskaginn á réttri leið
Framkvæmdastjórnin hefur gefið út árlega
greinargerð um áætlun varðandi stækkunarstefnu ESB. Að
auki er þar birt samantekt á þeim árangri sem náðst hefur
í aðildarundirbúningi Tyrklands og ríkja á Vestur- Balkanskaga. Lesið meira
hér.
Tveggja
ára efnahagsspá ESB
Efnahagsspá fram til ársins 2010 var birt á dögunum. Í henni
kemur fram sú spá að hagvöxtur innan ríkja ESB fyrir árið
2008 verði 1,4%, eða helmingi minni en hann var árið 2007,
og að hann muni fara niður í 0,2% áður en birta fari til
aftur árið 2010. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær, að
verðbólgu er spáð minnkandi. Lesið meira
hér..
Evrópska
ungmennavikan 2008
Dagana 2-9 nóvember verður evrópska ungmennavikan haldin í
fjórða skiptið víðs vegar um Evrópu. Þar gefst ungmennum
tækifæri á að taka þátt í pólitískum umræðum og
menningarviðburðum. Að auki verður haldin ráðstefna í Brussel á sama tíma, þar sem að ungt fólk fær tækifæri
til að ræða við fulltrúa framkvæmdastjórnarinnar
og Evrópuþingsins. Lesið meira
hér.
Barroso
um aðgerðir í fjármálakreppunni; atvinnuvegirnir og heimilin
í forgang
Forseti framkvæmdastjórnarinnar lagði í vikunni fram
stefnumótandi tillögur um aðgerðir í fjármálakreppunni.
Barroso kynnti áætlun sem miðar að því standa vörð um
fjölskyldur og atvinnuvegina. Frekari tillögur í
þessum efnum verða kynntar þann 26. nóvember nk.
Lesið meira
hér.
Samkomulag
um fiskveiðar
Framkvæmdastjórnin fagnar nýlegum niðurstöðum alþjóðafiskveiðiráðsins, en þar
var meðal annars ákveðið að skera niður leyfilegan hámarksafla á ýmsum
tegundum og að skerpa enn frekar reglur sem snúa að brottkasti. Að auki
var ákveðið að ráðast í aðgerðir til að koma í veg fyrir frekari ofveiði
á túnfiskstofninum. Lesið meira
hér.
Möguleiki
á nýju samstarfi á sviði grænnrar orku
Þreifingar eru í gangi um að koma á fót nýjum samstarfsvettvangi á sviði
umhverfisvænnar orku, sem mun fá heitið European Energy Research
Alliance. Samstarfið myndi meðal annars leitast við að gera Evrópu
að leiðandi afli í nýtingu á nýjum orkugjöfum. Lesið meira
hér.
Evrópusambandið
og alþjóðaviðskipti
Út er komin ný skýrsla á vegum framkvæmdastjórnarinnar sem skoðar stöðu
og styrk ESB í alþjóðaviðskiptum. Þar kemur meðal annars fram að ESB
hefur haldið markaðshlutdeild sinni býsna vel þrátt fyrir aukna
samkeppni í alþjóðaviðskiptum. Til dæmis varpar skýrslan ljósi á þá
staðreynd að ESB heldur sínum hlut sem stærsti útflytjandi
framleiðsluvara í heiminum. Samt sem
áður þarf að setja meiri kraft í fjárfestingar og framleiðslu á sviði
hátækni, segir í skýrslunni. Að auki dregur skýrslan fram mikilvægi þess
að stefna að aukinni markaðshlutdeild ESB í Asíu. Lesið meira
hér.
ASEM
ráðstefna í Peking
Evrópskir og asískir leiðtogar hittust í Peking á dögunum á svokallaðri
ASEM ráðstefnu, sem að haldin er á tveggja ára fresti. Tilgangur
ráðstefnunnar er að efla pólitísk-, efnahagsleg- og félagsleg samskipti
á milli ríkja í heimsálfunum tveimur. Á ráðstefnunni var m.a. lögð
fram sameiginleg yfirlýsing um
sjálfbæra þróun. Lesið meira
hér.
Framkvæmdastjórn
ESB og Kúba ákveða að sættast
ESB og Kúba gáfu nýverið út sameiginlega yfirlýsingu þar sem fram kemur
að þessir aðilar hyggjast taka upp þráðinn á ný í samskiptum sínum og
stefna á enn betra samstarf, til dæmis á sviði umhverfismála, tækni og
viðskipta. Á sama tíma var tilkynnt að framkvæmdastjórnin hefði lagt
tvær milljónir evra til hliðar til að aðstoða við enduruppbyggingu á
Kúbu eftir eyðileggingu fellibylanna Gustav og Ike. Lesið meira
hér.
Rafvæðing
opinberra innkaupa
Framkvæmdastjórnin ætlar að kanna hver reynslan hefur verið af tilraunum
með rafræn opinber innkaup innan EES-svæðisins. Kostnaður við opinber
innkaup er allt að 16% af vergri landsframleiðslu. Að þeim sökum er
talið mikilvægt fyrir samkeppnishæfni Evrópu að draga verulega úr öllum
kostnaði við innkaup og leitast við að nútímavæða markað fyrir opinber
innkaup enn frekar. Lesið meira
hér.
Aukinn
réttur afleysingafólks
Evrópuþingið hefur samþykkt tilskipun framkvæmdastjórnarinnar um betri
kjör afleysingafólks. Þessi tilskipun mun meðal annars tryggja að
afleysingafólk njóti sömu kjara og fastráðnir starfsmenn, bæði hvað
varðar laun og félagsleg réttindi. Lesið meira
hér.
Aukning
í einkalífeyrissparnaði
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar er viðbótar lífeyrissparnaður
einstaklinga að aukast í Evrópu, þrátt fyrir að umfangið sé mjög
mismunandi á milli landa. Þessi þróun mun að líkindum auka enn á þörfina
á frekari samvinnu milli aðildarríkja sambandsins, meðal annars til að
tryggja betri aðgang að sparnaðarmöguleikum og samræmdari löggjöf á þessu
sviði. Lesið meira
hér.
Baráttan
gegn mansali
Evrópusambandið hefur lengi beitt sér í baráttunni gegn mansali. Nýlega
lagði sambandið fram tillögu um heildstæða lagasetningu í þessum efnum,
en ennþá virðist bilið á milli lagasetningar og framkvæmdar of mikið að
mati ESB. Lesið meira
hér.
Á
réttri leið með Kyoto
Útreikningar sýna að ríki ESB er á réttri leið með að ná fram markmiðum Kyoto-samkomulagsins um að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Þetta kemur fram í ársskýrslu
framkvæmdastjórnarinnar um losunarheimildir. Lesið meira
hér.
|