|

Fréttabréf
fastanefndar
framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi,
13. mars
2008
Vel sótt ráðstefna um áhrif Evrópuþingsins og evrópskra
þjóðþinga á ákvarðanatöku í ESB/EES
(10/03)
Um 60 manns sóttu ráðstefnu fastanefndar ESB og
utanríkismálanefndar Alþingis um áhrif og stöðu evrópskra
þinga á vettvangi ESB/EES.
Þingmenn frá Evrópuþinginu, norska Stórþinginu og Alþingi
héldu framsögur og í lokin spunnust líflegar umræður í
pallborði. Erindi og nánari umfjöllun um ráðstefnuna er að
finna
hér.
Stuðningur
við breytingar á landbúnaðarstefnu ESB
(13/03)
Almenningur í löndum ESB er hlynntur þeim breytingum sem hafa
orðið á landbúnaðarstefnu ESB á síðustu árum, en þróunin hefur verið frá
niðurgreiðslum og styrkjum til framleiðslu í átt að beinum styrkjum og ýmis
konar stuðningi við uppbyggingu á landsbyggðinni. Yfirgnæfandi meirihluti er
einnig fylgjandi reglum um minni stuðning við bændur sem ekki framfylgja
stöðlum um umhverfisvernd, matvælaöryggi og meðferð dýra.
Lesið hér.
ESB
leiðtogar og aðilar vinnumarkaðarins ræða framtíð Lissabon-áætlunarinnar
(13/03)
Helstu leiðtogar ESB og fulltrúar evrópskra atvinnurekenda og
launþega hittust í dag, 13. mars, til að ræða næstu skref í Lissabon-áætlun
ESB um bætta samkeppnishæfni. José Manuel Barroso, forseti
framkvæmdastjórnar ESB, sagði af því tilefni að Evrópa yrði að leggja
áherslu á að skapa ný tækifæri og ný störf en um leið að tryggja að réttindi
launþega yrðu ekki fyrir borð borin. Samráð aðila á vinnumarkaði væri
lykillinn að árangri. Lesið meira
hér.
Rannsókn
á hamingju vinnur til evrópskra verðlauna
(12/03)
Evrópsku vísindaverðlaunin 2008 voru veitt nýlega og meðal
verðlaunahafa var hin ítalska Luisa Corrado, sem hlaut viðurkenningu fyrir
rannsóknir sínar á tengslum efnahags og hamingju. Evrópsku vísindaverðlaunin
eru veitt ár hvert fyrir framúrskarandi vísindastarf innan ramma
rannsóknaáætlana ESB. Lesið meira
hér um verðlaunin og verðlaunahafana.
Hert
löggjöf gegn skipum sem menga
(11/03)
Franco Frattini sem fer með innanríkis- og
dómsmál í framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram tillögur að
hertri löggjöf gegn skipum sem valda mengun.
Langstærsti hluti flutninga og veiða á sjó fer fram með
ábyrgum hætti, en ávallt eru dæmi um einstaka aðila sem sýna
gáleysi eða brotavilja í meðferð hættulegra efna og geta með
framferði sínu valdið miklu tjóni á lífríki sjávar. Lögunum
er m.a. ætlað að herða refsingar við slíkum brotum.
Lesið hér.
Einfaldara
regluverk fyrir fyrirtæki
og athafnalíf
(10/03)
Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram tillögur sem miða að því
að einfalda regluverk og minnka skrifræði í starfsumhverfi fyrirtækja og
athafnalífs í Evrópu. Tillögurnar eru hluti af markmiðum ESB um að minnka
skrifræði í starfsumhverfi fyrirtækja um 25% fyrir árið 2012 og skapa með
því hagstæðari skilyrði fyrir vöxt og verðmætasköpun.
Lesið hér.
Evrópsku
neytendaverðlaunin og
dagur neytenda 15. mars
(10/03)
Evrópskur dagur neytenda verður haldinn hátíðlegur 15. mars
n.k. og í tilefni að því voru í fyrsta sinn veitt sérstök evrópsk
neytendaverðlaun. Öllum aðildarríkjum ESB, auk Íslands og Noregs, var boðið
að senda inn tilnefningar í keppni um bestu neytendaherferð ársins. Fyrstu
verðlaun féllu Finnlandi í skaut fyrir sniðugan vefleik fyrir unga
vefneytendur. Einnig hlutu keppendur frá Írlandi, Noregi, Ungverjalandi,
Bretlandi og Eistlandi viðurkenningar.
Lesið hér.
|