|

Fréttabréf
fastanefndar
framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi,
28.
febrúar
2008
Ef þú getur ekki opnað póstinn smelltu þá
hér
Fastanefndin er flutt í nýtt
húsnæði að Klingenberggatan 7A, 5. hæð,
0161 Osló.
Öruggara
internet fyrir börn Framkvæmdastjórnin hefur lagt fram
tillögur um aðgerðir sem miða að því að gera internetið öruggara í notkun
fyrir börn og ungmenni. Aðgerðaáætlunin, sem kosta mun ESB yfir 55 milljónir
evra, er lögð fram í beinu framhaldi af áætlun um sama efni sem
hrint var í framkvæmd árið 2005. Miðað að því að tillögurnar verði hafðar að leiðarljósi við gerð rammaáætlunar á þessu málefnasviði.
Microsoft
og ESB: Framkvæmdastjórn ESB mun áfram sekta til Microsoft fyrir brot sín
Framkvæmdastjórn ESB hefur ákveðið að halda áfram að sekta
hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft, þrátt fyrir að fyrirtækið hafi á sínum tíma
brugðist við dómi sem féll í máli gegn því árið 2004. Svör við því af hverju
framkvæmdastjórn ESB hefur ákveðið að halda málinu til streitu, ásamt öðrum
algengum spurningum í þessu máli, sem margir telja gefa skýrt fordæmi, má
nálgast hér.
Hübner
um atvinnuþróun í dreifbýli norður Finnlands: Frumkvæði og nýsköpun til
fyrirmyndar. Danuta Hübner, sem sér um
málefni byggðastefnu í framkvæmdastjórn ESB, lét þau orð falla í
undirbúningi fyrir þriggja daga ferð til strjálbýlla héraða í norður
Finnlandi, að sá kraftur sem ríkir á sviði nýsköpunar meðal margra héraða í
norður Finnlandi væri til fyrirmyndar. Hübner mun í för sinni til Finnlands
m.a. heimsækja Rovaniemi, sem er bær sem náð hefur að afla sér veglegra
tekna með því að auglýsa sig sem heimabæ jólasveinsins.
Framkvæmdastjórnin
leggur fram tillögu um ríkisfjárfestingasjóði
Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram tillögu sem miðar að
því að samræma reglur um meðferð ríkisfjárfestingasjóði.
Tillagan miðar að því að auka gegnsæi og öryggi er við kemur
rekstri ríkisfjárfestingasjóða (sovereign wealth funds).
Umfjöllun um tillögu framkvæmdastjórnarinnar má nálgast
hér en einnig má nálgast svör við algengum spurningum um
ríkisfjárfestingasjóði og hvaða hlutverki þeir gegna,
hér.
Evrópudómstóllinn
um jafnrétti kynjanna Lög um vernd gegn
mismunun á grundvelli kynferðis nær til síðusta stigs tæknifrjóvgunar, þrátt
fyrir að viðkomandi aðili hafi ekki verið þungaður í tæknilegum skilningi
þegar honum var sagt upp. Dómurinn sem um ræðir féll í máli konu sem
sagt var upp störfum á meðan hún var í veikindaleyfi í tengslum við
tæknifrjóvgun sem hún fór í. Vegna þess að konan var ekki enn orðin þunguð
þegar henni var sagt upp, áttu lög sem gilda í ESB um vernd ófrískra kvenna
ekki við í þessu tilfelli. Evrópudómstóllinn komst hins vegar að þeirri
niðurstöðu að lög um jafnrétti kynjanna giltu hins vegar í þessu tilfelli og
dæmdi dómstóllinn því konunni í hag. Lesið nánar um þetta sérstaka mál
hér.
Framkvæmdastjórnin
veitir bændum í suðurhluta Finnlands
undanþágu
Framkvæmdastjórn ESB hefur gefið grænt ljós á að veita
undanþágu frá almennum skilyrðum um atvinnuþróunarstyrki í
ESB fyrir unga finnska bændur sem eru að hefja rekstur.
Undanþágan er veitt, þrátt fyrir að bændurnir haldi úti rækt
sunnar en það sem venjulegar undanþágur heimila. v Mun
undanþágan gilda í takmarkaðan tíma. Markmiðið með
undanþágunni er fyrst og fremst að gefa ungum bændum í
Finnlandi tækifæri á að standa jafnfætis eldri bændum sem
notið hafa góðs af styrkjum sem ekki eru í boði í dag.
|