Ný
bloggfærsla frá Percy Westerlund
Percy Westerlund sendiherra fastanefndarinnar hefur sent
frá sér nýja bloggfærslu. Þar fjallar hann um áhrif
hugsanlegrar
aðildarumsóknar Íslands á ESB-umræðuna í Noregi og ólíkar
umræðuhefðir í löndunum tveimur. Lesið
meira hér.
Fundur
með Olli Rehn í Osló
Fastanefndin stendur fyrir fundi með Olli Rehn,
framkvæmdastjóra stækkunarmála ESB, í Osló miðvikudaginn 10.
desember. Meðal annars verður velt upp spurningunni um
hversu langan tíma aðildarsamningar gætu tekið, skyldi
Ísland sækja um aðild að ESB. Fjallað verður almennt um
næstu skref í stækkunarferli ESB og horfurnar á aðild
Tyrklands, Króatíu og annarra ríkja á vestanverðum Balkanskaga.
Skráning er til 5. desember á
invitasjon@ec.europa.eu eða í síma (+47) 22 83 35 83.
Lesið meira
hér.
Olli
Rehn útilokar ekki að Ísland
fái aðild á undan Króatíu
Í viðtali við vefsíðuna
EurActiv.com útilokar Olli Rehn,
framkvæmdastjóri stækkunarmála ESB, ekki að Ísland geti
orðið aðildarríki á undan Króatíu, en það
myndi velta á framgangi
aðildarviðræðna. Búist er við að Króatía
fá inngöngu í ESB 2011 eða 2012. Rehn sagði að
samningaviðræður við Ísland gætu gengið hratt fyrir sig þar
sem Ísland hefði nú þegar tekið upp stóran hluta af löggjöf
ESB í gegnum aðild sína að evrópska efnahagssvæðinu. Sjá viðtalið
hér.
ESB
og Egyptaland skrifa undir orkusamning
Egyptaland og ESB skrifuðu á dögunum undir viljayfirlýsingu um að
auka samstarf sitt á sviði orkumála. Egyptaland er mikilvægt í gas- og olíuframleiðslu á
Miðjarðarhafssvæðinu og býr yfir miklum tækifærum til að
þróa og framleiða endurnýjanlega orkugjafa, t.d. vind- og
sólarorku. Lesið
meira
hér.
Nýjar
reglur um tollfrjálsan varning
Þann 1. desember gengu í gildi nýjar reglur varðandi innflutning
ferðamanna á tollfrjálsum varningi inn til
ríkja ESB. Þessar
reglur gefa ferðamönnum aukið frelsi til að
taka með sér ýmsan varning, til að
mynda mega þeir nú flytja með sér
tvöfalt meira magn af tollfrjálsum vörum og áfengi inn til
ríkja ESB en áður. Lesið meira
hér.
Loftslagsmál
í öndvegi þrátt fyrir efnahagslegar þrengingar
Dagana 1.-12. desember er loftslagsráðstefna SÞ haldin í Poznan í Póllandi. Framkvæmdastjórn ESB stefnir á að
halda ótrautt áfram með aðgerðir sínar á sviði umhverfis- og
loftslagsmála þrátt fyrir efnahagslegar þrengingar og mun
á ráðstefnunni hvetja aðra til að feta sömu
braut. Lesið meira
hér.
Áætlanir
ESB í kjölfar þrenginga á fjármálamarkaði
Framkvæmdastjórnin hefur kynnt ítarlega áætlun til að styðja
við evrópskt efnahagslíf í kjölfar ólgunnar
á fjármálamarkaði: Annars vegar felur áætlunin í sér ýmsar
skammtímaaðgerðir sem miða að
því að styrkja atvinnuvegi sambandsins. Einnig felur
áætlunin í sér hvata um langtímafjárfestingar til dæmis
er snúa að
menntun og þjálfun. Áætlaður kostnaður
er um 200 milljarðar evra,
eða 1,5% af sameiginlegri landsframleiðslu ESB. Lesið meira
hér.
ESB
tekur á kynbundnu ofbeldi
Þann 25. nóvember var alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóðanna
gegn kynbundnu ofbeldi. Í tilefni þess undirstrikaði
framkvæmdastjórnin fyrri skuldbindingar sínar
hvað þetta málefni varðar. Framkvæmdastjórnin vinnur að
gerð heildaráætlunar á þessu sviði í samræmi við ályktanir
SÞ nr. 1325 og 1820. Stefnt er að
því að ljúka gerð áætlunarinnar fyrir árið 2010. Lesið meira
hér.
Norðurheimskautið
fangar athygli ESB
Á dögunum var samþykkt orðsending frá framkvæmdastjórninni sem litið er á sem fyrsta skrefið í átt að
fullmótaðri stefnu ESB um norðurheimskautið. Orðsendingin undirstrikar áhrif
loftslagsbreytinga og mannlegra athafna í þessum heimshluta,
og í henni koma fram markvissar tillögur að lausnum við þeim
vanda er steðjar að svæðinu. Lesið meira
hér.
|